15október
Langaði bara að segja: Í dag sakna ég ykkar. Erum að vinna mikið með tilfinningar í tímunum þessa dagana og í dag er ég með heimþrá, kossar og knús til ykkar!
Kveðja Hólmfríður Rut
14september
Jæja nú kemur loksins færsla. Kom heim úr frábærri ferð frá London í nótt. Við lögðum af stað á þriðjudaginn og hótelið okkar var á frábærum stað en hræðilegt, eins og illa hirt fangelsi. Á þriðjudeginum röltum við um og skoðuðum Soho um kvöldið fórum við svo á nútímadanssýningu sem hét "IN-I" hún var frábær, þau voru tvö á sviðinu Juliette Binoche (lék í the english patient) og Akram Khan. Svo fóru nánast allir á barinn nema ég þar sem ég náði mér í hálfgerða flensu sem ég svaf úr mér þessa nótt. Miðvikudagur, fórum nokkur í göngutúr löbbuðum framhjá bigben, og röltum svo á imperial war museum, það var mjög gaman vorum þar í tvo eða þrjá tíma, og skoðuðum 007 sýningu sem var mjög flott. Þegar við vorum búin þar var ég komin með nóg af því að vera með þremur stríðsóðum strákum á stríðssafni, þeir voru eins og lítil börn í dótabúð

til að stelpa mig upp skellti ég mér ein á oxford og beint inn í 10000000 fermetra topshop og verslaði mér smá föt og skó. þar hitti ég svo fullt af stelpum úr skólanum, ég og Silke röltum svo áfram um og fórum svo heim að gera okkur fallegar fyrir leiksýninguna "Now or later", í grófum dráttum er hún um fólk sem ræðir pólitík, mjög fróðlegar og skemmtilegar rökræður en ekki spennandi uppsetning. Svo skelltum við okkur á barinn að drekka nokkra bjóra fyrir svefninn.
Fimmtudagur, Fórum á TATE modern safnið það var mjög stórt og rosalega vel upp sett, eyddum nokkrum klukkutímum þar. Þegar við vorum búin þar skelltum ég og Sienna okkur í primark og h&m, svo fórum við heim gerðum okkur sætar og fórum á leiksýninguna "Six charakters searching for an author" mjög flott og áhugaverð sýning. Eftir hana skelltum við okkur á Cheers og drukkum smá bjór. Á föstdeginum fórum við á Camden lock market, þegar ég og Mie komum heim þaðan fengum við okkur að borða og hittum fyrir tilviljun Ursula og Christine (vorum 4 saman í herbergi) borðuðum með þeim og svo skelltu þær sér í búðir og ég fór upp á hóte aðeins að slappa af og svo að rölta um og fyrir algjöra tilviljun hitti ég þær allar aftur 5 mín eftir að ég fór út af hótelinu, við fengum okkur kaffi og svo heim að gera okkur úber sætar fyrir seinasta kvöldið

Sáum leikritið "Some trace of her" það var mjög vel gert því var varpað upp á skjá, þetta var "bíómynd" sem va gerð á staðnum hef sjaldan séð verk jafn úthugsað og æft, og sagan var í þokkabót mjög góð. Þegar sýningin var búin fór ég, Lasse og Anders á bar að heimsækja vinkonu Anders, þegar við vorum búin þar kíktum við á eitthvað scandinavian party, og fyrir algjöra tilviljun eru Selma og Kamma það fyrsta sem ég sé þegar við löbbum inn. Ekkert smá fyndið ég hafði ekki hugmynd um að þær væru aupair í London.
Á laugardeginum fórum við nokkur í london bridge experience sem átti að vera ægilega óhugnalegt en var bara smá og það var út af risa plastkönguló sem réðst á mann. Svo fórum við upp á hótel og þá hófst ferðalagið heim, auðvitað var seinkun á vélinni og við vorum ekki komin heim fyrr en hálf tvö, þá skelltu sér nokkrir í björ en ég lagðist samstundis upp í rúm og rotaðist.
Nú er ég búin að segja frá ferðinni í grófum dráttum. frammundan er afslöppun og afslöppun, frí á morgun og svo byrjum við með nýja kennara, mjög spennandi! segi betur frá því þegar það er byrjað. Annars er allt gott að frétta, ég er loksins búin að gera herbergið mitt cosý þannig þið getið farið að koma í heimsókn! fer að verða kominn tími á að einhver láti sjá sig!
Bless í bili, ég er farin að taka upp úr tösku vúhúú!
- Hólmfríður Rut
20ágúst
MYNDAVÉLIN HÆTTI LOKSINS Í ÞESSU ÞREYTTA FELULEIK... JIBBÍ... HÚN ER KOMIN HEIM TIL MÖMMU! ÞÁ FARA AÐ KOMA INN MYNDIR :D
19ágúst
Jæja kominn tími á smá blogg.
Seinast þegar ég bloggaði vorum við á leiðinni í rútuferð um mön (eyjan sem ég bý á) Ferðin byrjaði á smá detour og við skoðuðum eyju sem er í 15 mínútna fjarlægð frá Stege (bærinn sem er 2 km frá skólanum) Þetta var pínulítil sæt eyja og ég held að það búi ca. 30-50 manns á henni. Svo skelltum við okkur á nútímalistasýningu í Stege, sem var ekki spes að mínu mati. Þegar við vorum búin að eyða dágóðum tíma þar skelltum við okkur að skoða Möns klint (hæsti hóllinn í danmörku) það kom mér eginlega á óvart hvað þetta var fallegur staður, bjargið var alveg snjó hvítt, einhveskonar krít (tóum smá með heim og hún er búin að vekja mikla lukku.)
Svo kom fimmtudagur og þá byrjuðum við að skipuleggja intromiddagen, okkur var skipt í 5 hópa, nemendur í 4 og kennarar í einum hóp. Þemað var ofurhetjur og ofurhetjan sem við áttum að vinna með var Jack Sparrow. efnið sem við áttum að vinna með var svo hvaða hlutir manni finnst vandræðalegir þegar maður er að kynnast nýju fólki. Svo fengum við sal sem við áttum að sýna þennan ca. 10 mínútna leikþátt. Við skreyttum líka borðið okkar þannig það voru allir með mismunandi skreytt borð og það kom mjög vel út. Við eyddum föstudeginum í að gera okkur klár og svo kl 6 borðuðum við saman og sáum fyrstu sýninguna. Þegar við vorum búin að sjá allar sýningarnar kveiktum við á tónlistinni og dönsuðum út í rauðan dauðann.
Á laugardeginum var súper gott veður þannig við fórum út í garð með skrilljón teppi og létum fara vel um okkur. Við kvöldmatarborðið datt nokkrum strákum í hug að halda mexikana/senjorítu partý, við létum verða af því og skemmtum okkur konunglega við salsa tónlist :)
Kennslan byrjaði svo að alvöru í gær og ég er með sjúkar harðsperrur og lasna tá í dag. Það er 70 ára gamall maður að kenna okkur að beita leikamanum rétt ásamt því að styrkja hann og svo er jóhanna (kona skólastjórans) að kenna okkur að vera andlega á svæðinu og finna fyrir hinum sem eru með manni í herberginu.
Ég held ég hafi ekki meira að segja en það að þetta er alveg frábær staður með frábæru fólki sem ég hlakka til að kynnast ennþá meira næstu mánuðina.
13ágúst
Ég var svo þreytt í gær þegar ég var að blogga að ég gleymdi alveg að segja hvað mér fyndist um allt og alla. Mér líst rosalega vel á þetta, krakkarnir eru æðislegir, við erum 36 sem er ekki mikið þannig það var ekki erfitt að ná öllum nöfnunum. (enda erum við búin að vera í stanslausum nafnaleikjum síðan á sunnudaginn) ;) skólastjórinn og konan hans (sem er einn af kennurunum okkar) búa hérna í skólanum ásamt tríne sem er oldfrue og hennar fjölskyldu. Svo búa allir aðrir á mön nema tveir kennarar sem eru einnig að kenna annarsstaðar. Það eru allir svo opnir og þótt ég sé bara búin að vera hérna í 3 daga finnst mér eins og ég sé búin að þekkja nokkra í mörg ár. Á morgun förum við á bustur um mön þannig þá set ég inn fullt af myndum úr ferðinni og það sem ég er búin að taka hingað til.
indtil da
- Hólmfríður Rut
12ágúst
Ferðalagið frá íslandi gekk mjög vel þangað til að ég komst að því að stætóinn sem ég var í stoppaði 2,5 km frá skólanum sem er frekar mikið þegar maður er með miknn farangur súper þreyttur og spenntur! þegar ég er aðeins búin að labba sé ég shell og þar er rosa góð afgreislustúlka sem hringir á leigubíl handa mér (þegar ég var aðeins búin að tala hana til)
Þegar leigubíllinn kemur 20 mínútum seinna er ég orðin frekar stressuð því það stendur á upplýsingunum sem ég fékk að þau myndu aðeins taka á móti okkur milli 16:30 og 17:30 og klukkan er nú þegar orðin 17:32 :S
Þegar ég kem keyrandi upp að skólanum stendur fullt af fólki í garðinum, um leið og ég fer út úr bílnum koma til mín tveir strákar (sem eru búnir með hálft ár á skólanum, kim og ellroy) þeir bjóða mig velkomna og taka mig með sér til þess að sýna mér hvar herbergið mitt er. um leið og ég labba inn er fullt af fólki sem tekur á móti manni nánast með kossum og knúsum. Svo sýnir Elroy mér allann skólann, þegar það er búið er akkúrat kominn matur, eftir mat var 15 mín. pása og við skelltum okkur upp í sófasalinn og þar fórum við í nokkra típíska kynningarleiki. Eftir það fórum við og drukkum te og borðuðum köku og spjölluðum til ca. 11
DAGUR 1:
Vaknaði kl 7:30 morgunmatur kl 8:00 og svo út að skokka um svæðið, jeijj :) ekkert smá fallegt, set inn myndir á næstunni. Svo fengum við smá nasaþef af kennslunni restina af deginum. Um kvöldið lavede vi hygge i bogruppen. (strax búin að gleyma íslenskunni) ;) og jú við horfðum á hancock
DAGUR 2:
Dagurinn í dag er búinn að vera erfiður því kennslan var erfið andlega og líkamlega! í dag komu tveir nýjir kennarar og ið fengum einnig nasaþefinn af kenslunni þeirra. svo var matur og eftir hann sungum við aðeins og svo fórum við að spjalla og svona :)
Ég er líka að gleyma að það er morgensamling alla daga í 15 mín. þar er sungið sagt góðan daginn rosa hátt.
Jæja þetta er allt í bili er orðin mjöög þreytt :)
- Hólmfríður